Andri Már Ingólfsson, stjórnarformaður Primera, segir lægstu launin hjá flugfreyjum félagsins sem ráðnar voru á vegum áhafnaleigu á Guernsey vera margfalda þá upphæð sem nefnd var í frétt mbl í gær. Þar var haft eftir formanni Flugfreyjufélags Íslands, Sigríði Ásu Harðardóttur, að grunnlaunin væru 400 evrur á mánuði, eða um 60 þúsund íslenskar krónur auk þess sem þær fengu prósentu af sölu um borð í vélinni.
Launakjörin segir hann þó vera trúnaðarmál og ekki til birtingu opinberlega.
Mbl greindi frá því á dögunum að Primera hefði sagt upp samningum við íslenska flugliða flugfélagsins en hins vegar tekið á leigu íbúðir á Ásbrú í Keflavík fyrir að minnsta kosti sex grískar flugfreyjur sem ráðnar voru til starfa sem verktakar á vegum áhafnaleigu fyrir áramót. Andri segir ástæðu þess að erlendar áhafnir séu notaðar nú að hluta til sé að þær séu hluti af áhöfnum þeirra í París, þar sem flugfélagið er með umfangsmikla starfsemi. Þessum flugliðum hafi verið boðin tímabundin vinna á ´slandi til að halda þeim fram á sumar og viðhalda þjálfun þeirra.
„Áfram verður notast við íslenskar flugfreyjur eins og kostur er að hluta til eins og verið hefur áður,“ bætir hann þá við.
Í síðustu viku var greint frá því í sænskum fjölmiðlum að flugliðum Primera í Svíþjóð hefði verið sagt upp störfum en þó verið boðið að halda áfram á þeim kjörum er kveðið er á um í kjarasamningum í Lettlandi. Það hefði þýtt 23% launalækkun auk fleiri vinnustunda. Andri segir flutning á starfseminni undir lettneskt flugrekstrarleyfi vera ástæðu uppsagnanna og bendir á að unnið hafi verið undir dönsku leyfi fram að þessu. „Það er í hagræðingarskyni og eðlileg ráðstöfun. Margir af þeim aðilum sem hafa unnið fyrir okkur í Stokkhólmi vinna áfram fyrir okkur undir nýju leyfi,“ segir Andri.
Þá bendir hann á að Primera Air sé með starfsemi í 8 löndum og fljúgi til 80 flugvalla. „Það er mjög eðlileg ráðstöfun að nota áhafnaleigur fyrir hluta af þeirri starfsemi til einföldunar á starfsmannamálum, enda þurfa sumir flugliðar að flytja sig á milli landi eftir verkefnum. Eðli starfseminnar er í grunninn gjörólík venjulegu áætlunarflugfélagi sem flýgur allar sínar ferðir frá sama stað,“ segir Andri.
Hann segir flutning starfseminnar til Lettlands þá vera til þess fallinn að samþætta starfsemina og til þess að unnt sé að vinna á mismunandi mörkuðum hafi þurft að koma öllum deildum félagsins á einn stað. „Riga varð fyrir valinu vegna mikils mannauðs þar með reynslu af flugi, hagkvæmu umhverfi, sem og vegna nálægðar við alla megin markaði Primera Air, Stokkhólm, Helsinki, Oslo, Kaupmannahöfn og Billund.“
Kristinn Örn Jóhannesson, trúnaðarmaður VR hjá Primera Air, hefur bent á að félagið hafi sneitt hjá lögum um hópuppsagnir með því að segja starfsfólkinu upp í nokkrum skrefum þegar legið hafi fyrir að segja þyrfti öllum upp. Andri segir það taka marga mánuði og jafnvel ár að flytja starfsemina og að einungis hafi verið hægt að flytja lítinn hluta starfseminnar í einu til að tryggja rekstraröruggi og stöðugleika starfseminnar. „Þetta hefur ávallt legið fyrir og var kynnt starfsfólki frá byrjun og hefur verið unnið í fullu samráði við starfsfólkið, enda hefur það góða starfsfólk sem hefur unnið fyrir Primera Air leyst þetta af hendi að einstakri ræktarsemi og fagmennsku og hefur engin skuggi fallið þar á og kann Primera Air þeim miklar þakkir fyrir frábær störf,“ segir Andri.