EasyJet fór fleiri ferðir en WOW air

Airbus vél frá easyJet tekur á loft frá Keflavíkurflugvelli.
Airbus vél frá easyJet tekur á loft frá Keflavíkurflugvelli.

Breska lággjaldaflugfélagið easyJet fór fleiri ferðir til og frá Íslandi í janúar en WOW air. Icelandair er sem fyrr umsvifamest flugfélaganna. Þetta kemur fram í frétt á Túrista.is.

Í janúar síðastliðnum fjölgaði áætlunarferðum frá Keflavíkurflugvelli um 17 prósent frá sama tíma í fyrra samkvæmt talningu Túrista. Munar þar mest um að easyJet flaug hingað meira en tvisvar sinnum oftar en í janúar á síðasta ári. Ferðum á vegum Icelandair fjölgaði um nærri fimmtíu á sama tíma en vélar WOW air ekki eins oft á ferðinni.

EasyJet var því næststærsta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði, segir í frétt Túrista.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK