Framhaldssagan um hulið og flókið eignarhald smálánafyrirtækja á Íslandi virðist ekki á enda.
Í vikunni féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á að vísa máli sem höfðað er á hendur Skorra Rafni Rafnssyni og Hraðpeningum ehf., félagi sem hann stofnaði, frá dómi. Skorri Rafn, einn stofnenda Hraðpeninga, krafðist frávísunar á þeim grundvelli að stefna hefði átt kýpverska félaginu Jumdon Micro Finance Ltd. einnig, en ekki aðeins honum og Hraðpeningum ehf.
Með því að samþykkja frávísunarkröfuna fellst dómari þannig á það að stefna beri kýpverska félaginu einnig. Rökin fyrir því eru þau að Jumdon Micro Finance (eða Jumdon Finance) sé eigandi félagsins Hraðpeninga ehf. þegar stefnan er lögð fram, í júní síðastliðnum.
Úrskurðurinn vekur athygli í ljósi þess að í tölvupósti sem Óskar Þorgils Stefánsson, núverandi framkvæmdastjóri félags að nafni Neytendalán ehf., sendi öllum fjölmiðlum hinn 22. janúar síðastliðinn segist hann vera sjálfur eigandi að Hraðpeningum ehf. enda sé það félag í eigu Neytendalána ehf. – sem sé í sinni eigu. Hann hafi keypt félagið af Jumdon Finance í september árið 2013, eða áður en stefnan var lögð fram.
Í gögnum málsins er hins vegar hvergi getið um Óskar eða félagið Neytendalán ehf. Skorri Rafn lagði aðeins fram frávísunarkröfu á þeim grunni að Jumdon Finance væri aðili málsins sem eigandi. Ekki virðist getið um kaup Óskars á hlutafé í Neytendalánum ehf. eða Hraðpeningum ehf.
Lögmaður stefnanda í málinu taldi að ekki væri hægt að stefna Jumdon Finance sökum þess að engar upplýsingar lægju fyrir um félagið, starfsemi þess eða það hvort það væri yfirhöfuð til.
Málið gerist enn skrýtnara því þegar félögunum Neytendalán ehf. og undirfélagi þess Hraðpeningum ehf., var flett upp í hlutafélagaskrá Creditinfo hinn 6. febrúar var búið að taka út upplýsingar um hluthafa félaganna. Í hlutafélagaskránni stendur nú orðrétt: „Fjöldi þekktra hluthafa: 0“ þegar leitað er eftir upplýsingum um skráningu þessara tveggja einkahlutafélaga, Hraðpeninga ehf. og Neytendalána ehf.
Þegar blaðamaður spurðist fyrir um málið hjá Creditinfo fékkst staðfest að fyrri upplýsingar um hluthafa og eignarhald félaganna væru einfaldlega orðnar of gamlar, en eina heimildin sem lögð hefur verið fram um eignarhald Jumdon Finance er ársreikningur Hraðpeninga frá árinu 2011. Upplýsingar um að Jumdon Finance sé eigandi félaganna hafi því verið metnar úreltar og verið felldar út úr skránni.
Líkt og upplýst var um í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins 25. janúar á komu engar upplýsingar fram um hluthafa Neytendalána ehf. í ársreikningi félagsins fyrir árið 2013 en þar voru eigendur einfaldlega sagðir vera „ótilgreindir útlendingar“. Í tölvupóstinum frá 22. janúar staðhæfði framkvæmdastjóri Neytendalána ehf. hins vegar að hann væri eigandi félagsins. Það hljóta því að teljast nýjustu upplýsingar um eignarhald smálánafélagsins Neytendalána ehf. sem að sögn Óskars er eigandi Hraðpeninga ehf., 1909 ehf. og Múla ehf.
Skúli Sveinsson, lögmaður stefnanda í málinu gegn Skorra Rafni og Hraðpeningum, segir að úrskurði héraðsdóms verði áfrýjað til Hæstaréttar strax eftir helgi.
Til að taka af allan vafa um þær upplýsingar sem fram hafa komið í tölvupóstum Óskars Þorgils Stefánssonar þá segir orðrétt í tölvupóstinum frá 22. janúar:
„Eigandi Hraðpeninga, 1909 og Múla er ekki „bara einhver lögfræðistofa sem er einhver tengiliður“ eins og hún [Eyrún Magnúsdóttir] hefur sagt. Hraðpeningar, 1909 og Múla tilheyra fyrirtækinu Neytendalán, sem er í minni eigu. Fyrirtækið keypti ég árið 2013 af fyrirtækinu Jumdon Finance á Kýpur, en ég hafði starfað hjá Hraðpeningum frá stofnun félagsins. Jumdo Finance keypti Hraðpeninga, 1909 og Múla af fyrri eiganda árið 2011, sem hefur s.s. ekki komið að rekstri fyrirtækisins í á fjórða ár.“
Blaðamaður fór þess á leit við Óskar að hann greindi nánar frá kaupunum og bað hann um að veita upplýsingar um fyrrnefnt kýpverskt félag. Hér eru spurningar blaðamanns og svör framkvæmdastjórans birt orðrétt:
1. Hver er eigandi fyrirtækisins Jumdon Finance? Geturðu gefið mér upplýsingar um tengilið við fyrirtækið sem ég get haft samband við?
„Ég svara ekki fyrir Jumdon Finance, það fyrirtæki er ekki á mínum vegum. Ég skal hinsvegar koma fyrirspurn þinni á framfæri við Jumdon Finance og vænti þess að forsvarsmenn fyrirtækisins verði í samband við þig.“ [Ekkert hefur heyrst frá Jumdon Finance enn.]
2. Þú segir í pósti þínum: „Hraðpeningar, 1909 og Múla tilheyra fyrirtækinu Neytendalán, sem er í minni eigu. Fyrirtækið keypti ég árið 2013 af fyrirtækinu Jumdon Finance á Kýpur.“ Hvenær fóru kaupin fram? Hvað var greitt fyrir hlutinn?
„Kaupin áttu sér stað í september árið 2013. Kaupverð er trúnaðarmál milli aðila.“
3. Þú segir að í skrifum mínum séu „ítrekaðar rangfærslur“. Geturðu bent á þessar rangfærslur?
„Það er af mörgu að taka en nægi að benda á að ítrekað hefur verið farið rangt með upplýsingar um eignarhald, stofnendur, vexti og fleira. Ef þú vilt fá nánari útlistun á þeim rangfærslum sem fram hafa komið í greinum þínum undanfarið þá get ég sent þér þær á næstu dögum.“
[Blaðamaður hefur ekki fengið nánari útlistanir á meintum rangfærslum.]
4. Þú segir: „Jumdon Finance keypti Hraðpeninga, 1909 og Múla af fyrri eiganda árið 2011, sem hefur s.s. ekki komið að rekstri fyrirtækisins í á fjórða ár.“. Hver er ástæða þess að fyrri eigandi – Skorri Rafn Rafnsson – var áfram prókúruhafi og stjórnarmaður eftir að Jumdon Finance keypti? Fyrri eigandi var með prókúruumboð fyrir Hraðpeninga.
„Ég svara ekki fyrir Jumdon Finance, það fyrirtæki er ekki á mínum vegum.“
5. Hvers konar fyrirtæki er Jumdon Finance og hvað starfa margir hjá fyrirtækinu?
„Ég svara ekki fyrir Jumdon Finance, það fyrirtæki er ekki á mínum vegum.“
[Áður en ofangreind svör höfðu borist sendi blaðamaður eftirfarandi spurningu, og barst svar við henni í sama pósti og við hinum fimm.]
6. Það er ekkert í ársreikningi Neytendalána fyrir 2013 sem segir að þú sért eigandi að Neytendalánum ehf. Því ítreka ég spurninguna: Hvenær keyptir þú Neytendalán af Jumdon Finance?
„Kaupin áttu sér stað í september árið 2013. Rangur hlutafjármiði var sendur með ársreikningi Neytendalána fyrir árið 2013 til RSK. Það verður að sjálfsögðu leiðrétt fyrir 2014 en skil eru í næsta mánuði.“
Ársreikningi Neytendalána ehf. fyrir árið 2013 var skilað inn að nýju til ársreikningaskrár RSK í vikunni, en samkvæmt upplýsingum þaðan hefur hann ekki verið tekinn til skoðunar og þar með ekki verið birtur.