Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í seinustu viku, 30. janúar til og með 5. febrúar, var 106. Þar af voru 76 samningar um eignir í fjölbýli, 23 samningar um sérbýli og sjö samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 4.088 milljónir króna og meðalupphæð á samning 38,6 milljónir króna, að því er segir á vef Þjóðskrár Íslands.
Á sama tíma var fimmtán kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru fimm samningar um eignir í fjölbýli, átta samningar um sérbýli og tveir samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 309 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,6 milljónir króna.
Átta kaupsamningum var þinglýst á Akureyri á sama tíma. Þar af voru fimm samningar um eignir í fjölbýli, tveir samningar um sérbýli og einn samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 168 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21 milljón króna.
Þá var fimm kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þeir voru um sérbýli. Heildarveltan var 71 milljón króna og meðalupphæð á samning 14,2 milljónir króna.
Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar og svo framvegis.