Hreggviður Jónsson, formaður Viðskiptaráðs, sagði í ávarpi sínu á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, að skoðanakönnun sem ráðið lét framkvæma á dögunum hafi leitt í ljós að margir Íslendingar vilji mikið fyrir lítið.
Í könnuninni kemur fram að stór hluti Íslendinga telur skattbyrði sína of háa en telur á sama tíma ónauðsynlegt að minnka opinber umsvif. Hreggviður sagði ákvörðun um umfang þjónustu hins opinbera vera jafnvægislist sem snúist um forgangsröðun og skilvirka nýtingu fjármuna. Á undanförnum áratugum hafi vantað mikið upp á að þessi sjónarmið hafi verið höfð að leiðarljósi. Aðhaldsaðgerðir hins opinbera á síðustu árum hafi að mestu leyti verið í formi skattahækkana og samdrætti í fjárfestingu, sem seint yrði talin varanleg hagræðing.
Þá sagði hann það vera skýra afstöðu Viðskiptaráðs að grundvöllur bættra lífskjara felist í langtímastefnu þar sem áhersla er lögð á bætta samkeppnishæfni og þar með aðstæður til verðmætasköpuna
Hreggviður ræddi um mikilvægi aukinnar framleiðni. Í því samhengi vakti hann athygli á því að einkageirinn hafi skapað sívaxandi verðmæti á hverja vinnueinungu á undanförnum árum. Opinberi geirinn hafi hins vegar setið eftir. Þannig hafi stöðugildum hjá hinu opinbera fjölgað um 30% á sama tíma og stöðugildum í einkageiranum hafi fækkað um 7% á sama tímabili. Sagði Hreggviður að þessi þróun væri ósjálfbær.
Í máli Hreggviðs kom fram að með aðgerðum sem byggja á skynsamlegum markmiðum mætti komast hjá verulegri lífskjaraskerðingu Íslendinga á komandi árum. Sagði hann brýnt og tímabært að innleiða kerfisbreytingar sem geri okkur kleift að fá meira fyrir minna. En til þess að það sé mögulegt þurfi ný viðhorf.
Hreggviður sagði umræðuhefð stjórnmálanna hafa mikil áhrif á afstöðu til breytinga. Mikill munur sé á því að vera sammála um allt og sammála um ekkert. Þegar upp sé staðið séum við sammála um miklu fleiri mál en umræðan gefur tilefni til að ætla. Sagði Hreggviður stjórnmálin þurfa að velja sér orrustur betur. Hagkvæmari rekstur hins opinbera sé öllum til hagsbóta og óttinn við breytingar megi ekki standa bættum lífskjörum fyrir þrifum.