Frystitogarinn Kleifarberg RE 70 hefur aldrei landað verðmætari afla en í dag þrátt fyrir mikla brælu á miðunum. Kleifarberg landaði um 950 tonnum af þorski og ýsu á Siglufirði í morgun og nemur aflaverðmætið um 361 milljón króna.
Togarinn var að veiða við Noregsstrendur og segir Árni Gunnólfsson, skipstjóri, að veðrið hafi verið það versta miðað við árstíma í fleiri ár. „Við vorum oft með trollið inni vegna veðurs og þurftum einu sinni að flýja til Tromsö,“ segir Árni. „En þegar við gátum verið við veiðar, þá veiddist vel,“ segir hann.
Þá bætir hann því léttur í bragði við að meira hefði komist fyrir í lestinni en pakkningar hefði hins vegar vantað sökum mistaka í talningu. „Við hefðum því getað verið með ennþá meira,“ segir Árni.
Frystitogarinn Kleifarberg RE 70 er gerður út frá Reykjavík og er í eigu Brims hf. Hann er einn elsti togari landsins og smíðaður árið 1974 i Póllandi.