N1, Olís og Shell hafa öll hækkað verð á bensínlítranum í dag. Verðið hjá þeim er nú á bilinu 211,80-214,90 kr. Orkan, ÓB og Atlantsolía hafa ekki hækkað verðið hjá sér og kostar lítrinn hjá Orkunni 209,50 kr. Hjá ÓB og Atlantsolíu kostar hann 209,60 kr.
Í byrjun febrúar fór verðið á lítranum undir 200 krónurnar.
Hér er hægt að fylgjast með bensínverðinu.
Þegar verðið á lítranum fór aftur yfir 200 kr. um miðjan febrúar sagði Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri hjá N1, að langtímaspár gerðu ekki ráð fyrir mikilli uppsveiflu í verði.