Jafnrétti eflir Landsbankann

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, telur að jafnrétti efli bankann og …
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, telur að jafnrétti efli bankann og styrki stöðu hans í samkeppni um góða starfsmenn. mbl.is/Kristinn

Landsbankinn er fyrstur banka á Íslandi til að hljóta gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC og er jafnframt stærsta fyrirtækið sem hefur undirgengist og staðist þá úttekt. Gullmerki jafnlaunavottunar veitist fyrirtækjum þar sem launamunur kynja er innan við 3,5% og staðfestir viðurkenningin því að launamunur kynja hjá Landsbankanum sé innan þeirra marka.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

„Í Landsbankanum höfum við lagt mikla áherslu á jafnréttismál á undanförnum árum. Gullmerki PwC er mikilvæg staðfesting á stöðu jafnréttismála í bankanum og hvatning til að viðhalda þeirri stöðu til framtíðar. Við teljum að jafnrétti efli bankann og styrki stöðu hans í samkeppni um góða starfsmenn,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, í tilkynningu. 

Þar segir ennfremur, að í Jafnlaunaúttekt PwC sé gerð grein fyrir mun á grunnlaunum, föstum launum og heildarlaunum eftir kyni, þar sem tekið sé mið af aldri, starfsaldri, menntun, starfaflokki, stöðu í skipuriti og vinnustundum. Rúmlega 1.100 manns starfa hjá Landsbankanum, þar af eru 39% karlar og 61% konur.

Þá kemur fram, að Landsbankinn hafi á undanförnum árum lagt töluverða áherslu á jafnréttismál. Árið 2010 setti bankinn sér það markmið að hlutur hvors kyns um sig í forystusveit bankans skyldi ekki vera undir 40%. Í framkvæmdastjórn bankans eru fjórar konur og fjórir karlar að meðtöldum bankastjóra og bankinn uppfyllir einnig kröfur um jafnan hlut kvenna og karla í bankaráði. Í jafnréttisstefnu bankans kemur m.a. framað í Landsbankanum séu karlar og konur metin á eigin forsendum, hafi jafna möguleika og njóti sömu réttinda í starfi og til starfsframa. Í stefnunni kemur einnig fram að Landsbankinn stefni að jöfnu hlutfalli kynja meðal starfsmanna, að störf flokkist ekki sem karla- eða kvennastörf og að konum og körlum skuli greidd sömu laun fyrir jafn verðmæt störf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK