Á heimasíðu Hard Rock Café er Ísland sveipað appelsínugulum lit, sem þýðir að Hard Rock sé að leita eftir einhverjum til þess að sjá um rekstur veitingahússins hér á landi. Þegar smellt er á landið má sjá að Reykjavík er staðurinn þar sem þeir vilja opna. Áhugasamir geta sótt um á heimasíðunni.
Samkvæmt heimildum mbl.is hefur Hard Rock sett sig í samband við aðila á Íslandi sem ekki hafa tekið boðinu.
Hard Rock Café var rekið í Kringlunni frá árinu 1987 en það var veitingamaðurinn Tómas Tómasson sem opnaði staðinn á sínum tíma. Gaumur hf, eignarhaldsfélag Bónus-feðga, keypti Hard Rock á árið 1999 og átti staðinn þar til honum var lokað hinn 31. maí 2005.
Í dag eru 145 Hard Rock veitingastaðir í 59 löndum auk 21 hótels og tíu spilavíta.