Dunkin´ Donuts tilkynnti í dag að fyrirtækið hefur skrifað undir sérleyfissamning við íslenska fyrirtækið Drangasker ehf., dótturfélag 10-11, um að hefja undirbúning að opnun Dunkin´ Donuts veitingastaða á Íslandi.
Gerir samningurinn ráð fyrir opnun 16 Dunkin´ Donuts veitingastaða víða um land á næstu fimm árum, en flestir þeirra verða á höfuðborgarsvæðinu.
Dunkin' Donuts var stofnað árið 1950. Fyrirtækið er leiðandi á markaði í heitum og köldum kaffidrykkjum, kleinuhringjum, beyglum og möffins og hefur níu ár í röð náð fyrsta sæti í flokki kaffifyrirtækja hjá Brand Keys þegar kemur að hollustu við viðskiptavini sína.
Veitingastaðir Dunkin´ Donuts eru í dag 11.300 talsins í 36 löndum víða um heim. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Canton, Massachusetts og er Dunkin' Donuts hluti af Dunkin' Brands Group, Inc. (Nasdaq: DNKN).