Sú ákvörðun var tekin á fundi stjórnar Mjólkursamsölunnar í dag að ráða Ara Edwald í starf forstjóra félagsins frá og með 1. júlí. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá MS. Einar Sigurðsson, núverandi forstjóri MS, muni láta af störfum frá sama tíma.
Fram kemur að Ari eigi að baki farsælan feril í stjórnunarstörfum um árabil, meðal annars hjá 365 miðlum og Samtökum atvinnulífsins.