Framkvæmdastjóri Twitter, Dick Costolo, mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins fljótlega. Costolo hefur verið harðlega gagnrýndur undanfarna mánuði fyrir hvernig hann hefur leitt fyrirtækið. Jack Dorsey, einn stofnenda Twitter tekur tímabundið við sem framkvæmdastjóri.