Fjölmiðlar hreiðruðu snemma um sig í húsnæði Ríkisskattstjóra við Laugarveg í morgun þegar álagningarskrár voru lagðar fram en þær verða opnar í fjórtán daga.
Venju samkvæmt verða á morgun gefin út svokölluð tekjublöð en líkt og mbl hefur áður greint frá verður t.d. Tekjublað Frjálsrar verslunar með upplýsingum um skattgreiðslur 3.500 manna sent í prentun í nótt. Blaðamenn hafa því búið sig vel undir langan dag með sælgæti, gosdrykki og pítsur við höndina, líkt og sjá má af meðfylgjandi myndum.
Samanlögð álagning almenns tekjuskatts og útsvars nam alls 276,5 milljörðum króna og hækkaði um 6,1 prósent milli ára en alls fengu 169.240 einstaklingar álagðan almennan tekjuskatt og 260.708 fá álagt útsvar. Hinn 31. júlí verða greiddir um 19 milljarðar úr ríkissjóði til heimila. Þar er um að ræða endurgreiðslu á ofgreiddum sköttum, barnabætur og vaxtabætur.
Þórður Rafn Sigurðsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, er skattakóngur Íslands í ár en hann greiddi tæpar 672 milljónir króna í opinber gjöld á síðasta ári.
Kærufrestur er í 30 daga frá birtingu, vilji menn kæra álagninguna.