Miklar sviptingar eru á hlutabréfamörkuðum í Kína en í Sjanghaí hefur hlutabréfavísitalan lækkað um 5,22% það sem af er degi.
Shenzhen vísitalan hefur lækkað um 4,54% það sem af er degi en fréttir af efnahagsmálum í Bandaríkjunum hafa dregið niður hlutabréfamarkaði í Asíu í dag.
Í Tókýó lækkaði Nikkei hlutabréfavísitalan um 0,95% og í Seúl nam lækkunin 0,35%.