Apótek í auglýsingu American Express

Apótek Restaurant er á Apótek hótel á mótum Austurstrætis og …
Apótek Restaurant er á Apótek hótel á mótum Austurstrætis og Pósthússtrætis. Þórður Arnar Þórðarson

Um nýliðin mánaðarmót var auglýsing fyrir kortafyrirtækið American Express tekin upp á Apótek Restaurant. Um eitt hundrað manns komu að upptökunum en auglýsingin var mynduð að nóttu til. Gert er ráð fyrir að auglýsingin verði eingöngu sýnd erlendis.

Veitingageirinn greinir frá þessu. Þar segir að auglýsingin verði væntanlega góð auglýsing fyrir hótelið og veitingastaðinn og vísað er til eldri auglýsingar kortafyrirtækisins sem tekin var upp á einum stað Il Mulino veitingahúsakeðjunnar.

Líkt og mbl greindi frá fyrr í sumar rataði Apótek Restaurant inn á lista Buzz­feed yfir þá sautján staði á Norður­lönd­un­um sem fram­reiða glæsi­leg­asta skandi­nav­íska mat sem völ er á.

Apótek var opnaður í desember sl. og er til húsa í Aust­ur­stræti 16, þar sem Reykja­víkurapó­tek var áður. 

<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="315" src="https://www.youtube.com/embed/y-MUb99kM8E" width="560"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK