Kaffihúsakeðjan Dunkin' Donuts opnar sitt annað kaffihús á Íslandi í október næstkomandi og verður það staðsett á fyrstu hæð í Kringlunni.
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Dunkin' Donuts á Íslandi, segir í fréttatilkynningu það eðlilega þróun mála að annað kaffihúsið hér á landi verði í verslunarmiðstöðinni.
Gert er ráð fyrir að ráða þurfi í kringum 10 manns fyrir opnunina og eftir að þeim ráðningum lýkur eru um 30 manns í vinnu hjá Dunkin' Donuts á Íslandi.
Til stendur að Dunkin' Donuts staðirnir verði orðnir 16 talsins á Íslandi eftir fimm ár.