Áhugaverð þróun er í gangi hjá stórfyrirtækjum úti í heimi, líkt og hjá Apple, Google og Pepsi, þar farið er að koma hönnuðum fyrir í framkvæmdastjórn fyrirtækja. Þannig geta þeir haft áhrif á vöruþróun frá fyrsta uppkasti hugmyndar og drifið vinnuna áfram.
Þetta sagði Pétur Orri Sæmundsen, framkvæmdastjóri Kolibri, á hádegisfundi SUT - Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja, sem fór fram í Gamla bíó í dag. Yfirskrift fundarins var: „Er tæknifólk skapandi?“ Kolibri er hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur hannað hugbúnaðarlausnir fyrir mörg stærstu fyrirtæki landsins líkt og t.d. Nova, Já, 66° Norður og Össur.
Kolibri varð til í fyrra í núverandi mynd við sameiningu tveggja fyrirtækja; hugbúnaðarfyrirtækisins Spretts og hönnunarstúdíósins Form5.
Pétur segir að á fyrstu árum fyrirtækisins hafi tekjurnar aðallega stafað frá ráðgjöf þar sem öðrum fyrirtækjum var kennt að vinna í þverfaglegum teymum. „Frá 2012 til 2014 leiddi ég um sextíu teymi en í þeim sat aldrei hönnuður,“ sagði hann. „Hönnuður var hugsanlega á hliðarlínunni og sendi myndir og útlitinu var klína á vöruna eftirá.“
Pétur segir miklar breytingar hafa átt sér stað í samvinnu hönnuða og tæknigeirans á liðnum árum þar sem hönnuðir hafa fengið aukið vægi. „Ég ætla aldrei aftur að vinna í fyrirtæki þar sem ekki eru hönnuðir,“ sagði Pétur og benti á að hlutverk þeirra fælist ekki eingöngu í að hanna fallegt útlit heldur einnig að skilgreina hvernig hlutir eigi að virka. „Hönnuðurinn er alltaf skrefi á undan forriturum. Þannig komumst við hraðar og fáum betri vöru.“
Dóra Ísleifsdóttir, fagstjóri við Listaháskóla Íslands, tekur í sama streng og segir það vera hlutverk hönnuðarins að gæta að sjónarmiðum viðskiptavina viðskiptavinarins. „Ég held að það verði alltaf hagsbót allra að leggja það í hendur allra þeirra sem hafa þekkingu á einhverju sviði að stýra og leiða hlutina í rétta átt,“ sagði hún.
Samtök upplýsingatæknifyrirtækja munu standa fyrir hádegisverðafundum þriðja hvern fimmtudag í vetur í Gamla bíó. Félagið er starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins sem vinnur að því að skapa umhverfi fyrir skapandi fólk. Í upphafi fundarins sagði Haukur Hannesson, formaður félagsins, að eitt af markmiðum hópsins væri að fá almenning til þess að skilja virði upplýsingatækninnar og að beina sjónum að örum vexti greinarinnar.