Næsti Dunkin' á Blómatorgið

Frá Dunkin' Donuts á Laugavegi.
Frá Dunkin' Donuts á Laugavegi. Þórður Arnar Þórðarson

Nýtt Dunkin' Donuts kaffihús verður opnað á Blómatorginu svokallaða í Kringlunni. Þar verða sæti fyrir um þrjátíu til fjörtíu manns og opnað verður öðru megin við næstu mánaðarmót.

Þetta segir Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar. Blómatorgið er þar sem blómabúðin í Kringlunni er, rétt hjá verslun Lyf og Heilsu, í miðju göngugötunnar.

Blómabúðin verður flutt í rýmið þar sem verslun Levi's var áður, á móti Lyf og Heilsu. Rýminu hefur þá verið skipt í tvennt og verður rúmfataverslunin Lín Design einnig opnuð þar.

Sigurjón segist spenntur fyrir komu kleinuhringjakeðjunnar í Kringluna og bætir við að ekki sé búið að ákveða opnunardagsetningu en telur víst að það verði í lok október eða byrjun nóvember. „Við viljum hafa allt sem fólk er að sækja í. Það er hugmyndafræði hússins að allir sem í því eru hafi aðdráttarafl á vissan þátt,“ segir hann.

10 starfsmenn til viðbótar

Árni Pét­ur Jóns­son, for­stjóri Dunk­in' Donuts á Íslandi, hefur áður sagt að gert sé ráð fyrir að ráða þurfi tíu manns á kaffihúsið í Kringluna en þá verða starfsmenn Dunkin' á Íslandi alls þrjátíu talsins. 

Til stend­ur að Dunk­in' Donuts  staðirn­ir verði orðnir 16 tals­ins á Íslandi eft­ir fimm ár.

Frétt mbl.is: Dunkin' Donuts í Kringluna.

Sigurjón segir alla í Kringlunni hafa sitt aðdráttarafl.
Sigurjón segir alla í Kringlunni hafa sitt aðdráttarafl. mbl.is/Arnaldur
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka