Þrjár Airbus 330 breiðþotur sem WOW Air ætlar að leigja til þess að fljúga með farþega sína til Los Angeles og San Francisco á næsta ári verða einnig notaðar til þess að auka sætaframboð til Washington og Boston. Þetta kemur fram í viðtali Túrista.is við Skúla Mogensen, forstjóra og eiganda WOW Air. Hann segir að til þess að ná hámarks nýtingu á nýju flugvélunum hafi þurft að bæta við tveimur áfangastöðum á vesturströndinni.
Skúli segir einnig að staðsetning Íslands sé lykilatriði þegar það kemur að nýtingu á nýju flugvélunum.
„Á meðan SAS verður að fylla heila þotu í Stokkhólmi til að geta flogið til Los Angeles þá getum við flogið með farþegar alls staðar úr Evrópu til Íslands og þaðan áfram til Los Angeles,“ er haft eftir Skúla í viðtalinu.
WOW Air mun einnig hefja ferðir til Montréal í Kanada á næsta ári, á sama tíma og Icelandair. Áform WOW Air er að saxa verulega á forskot Icelandair á næstu misserum. Skúli segir mikinn mun á viðskiptamódelum flugfélaganna tveggja.
„Við seljum nær alla okkar farmiða á netinu, erum í beinum samskiptum við viðskiptavinina og getum betur stillt af verðin en þeir sem selja í gegnum þriðja aðila. Lággjaldamódelið er búið að sanna sig í flugi innan N-Ameríku, Asíu og Evrópu og það virkar líka í flugi yfir hafið líkt og við höfum sýnt fram á. Við teljum því að núna sé rétti tímapunkturinn til að taka næstu skref og sjáum tækifæri í að fjölga áfangastöðum í N-Ameríku og Evrópu.”
Skúli segir jafnframt að nýju breiðþoturnar verði einnig nýttar til að flytja enn fleiri farþega á stærstu áfangastaði WOW í Evrópu, það er London, Kaupmannahöfn, París og Amsterdam. Hann telur að einnig verði not fyrir stærri vélar í fluginu til Dublin en sú borg bættist við leiðakerfi WOW sl. vor og hefur flugið þangað gengið mjög vel.
Í viðtalinu segir Skúli það mikilvægt að hrinda af stað framkvæmdum við stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar án frekara tafa. Aðspurður hvort að WOW Air hafi tryggt sér tíma á Keflavíkurflugvelli fyrir nýja flugið segir Skúli stöðuna fyrir næsta ár fína. En hann segir það þó fyrirsjáanlegt að mikill flöskuháls muni skapast í flughöfninni á næstu árum.
Skúli lítur ekki svo á að aukin umsvif félagsins kalli á breiðari eigendahóp en Skúli er eini eigandi WOW air. „Það er engin þörf á því að fá inn nýja fjárfesta því það gengur einfaldlega það vel hjá okkur. Í október vorum við til dæmis með 92 prósent sætanýtingu á öllum okkar stöðum sem er ótrúlega hátt hlutfall í október. En ef það kæmu inn fleiri fjárfestar þá gæti ég ekki leyft mér að hlaupa eins hratt og ég geri í dag."