Spá 4,3% hagvexti

Kjarasamningar á árinu, sem ná til flestra launþega, fela í …
Kjarasamningar á árinu, sem ná til flestra launþega, fela í sér miklar launahækkanir árin 2015 og 2016..

Hagstofa Íslands spáir því að hagvöxtur mælist 4,3% í ár og  og 3,5% árið 2016. Um nýja þjóðhagspá er að ræða sem nær til áranna 2015–2019. 

Fjárfesting og einkaneysla knýja hagvöxtinn fyrstu tvö ár spátímans. Árið 2015 er gert ráð fyrir að einkaneysla verði um 4,4% og fjárfesting um 17,7%. Á árinu 2016 er gert ráð fyrir að vöxtur einkaneyslu verði 4,7% og fjárfestingar um 15,5%, segir í frétt Hagstofu Íslands.

Árin 2017 til 2019 er spáð 2,5–2,8% hagvexti og 2,7–4,2% aukningu einkaneyslu, en það dregur úr aukningu fjárfestingar.

Búist er við að samneysla aukist um 1,1–1,5% árlega 2015–2018 en opinber fjárfesting aukist lítillega.

Spá 3,2% verðbólgu á næsta ári

Lágt olíu- og hrávöruverð ásamt lítilli alþjóðlegri verðbólgu og gengisstyrkingu krónunnar hafa haldið verðbólgu á Íslandi niðri þrátt fyrir hækkandi launakostnað. Spáð er að verðbólga aukist á næstunni og verði 3,2% árið 2016 og 3,7% árið 2017 en fari lækkandi eftir það.

Kjarasamningar á árinu, sem ná til flestra launþega, fela í sér miklar launahækkanir árin 2015 og 2016. Endurskoðunarákvæði í kjarasamninga og SALEK-samkomulagið viðhalda til skamms tíma óvissu um launakjör á næstunni.

Hagstofan gaf síðast út þjóðhagsspá 29. apríl síðastliðinn og er næsta útgáfa ráðgerð í apríl 2016.

Þjóðhagsspáin í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK