Arion banki lauk í gær skuldabréfaútgáfu í norskum krónum. Samtals voru gefin út skuldabréf fyrir 300 milljónir norskra króna, eða sem jafngildir um 4,6 milljörðum króna, til tæplega fimm ára.
Um er að ræða viðbót við skuldabréfaútgáfu bankans frá því í júní á þessu ári. Bréfin, sem bera NIBOR vexti að viðbættu 2,95% vaxtaálagi, voru seld á kjörum sem samsvara NIBOR vöxtum með 2,80% álagi, segir í tilkynningu. Umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum sem seld voru til fjárfesta í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og á meginlandi Evrópu. Pareto Securities sá um sölu skuldbréfanna.
Samhliða skuldabréfaútgáfunni keypti Arion banki til baka 75 milljónir norskra króna af skuldabréfaútgáfu frá árinu 2013. Arion banki hafði áður keypt 319 milljónir og hefur bankinn samtals keypt 394 milljónir norskra króna tilbaka af 500 milljón norskra króna útgáfu frá árinu 2013.