Ökutækjatryggingar hjá VÍS hafa verið hækkaðar vegna þess að tryggingarnar hafa ekki staðið undir sér um nokkurt skeið.
„Iðgjöld einstakra trygginga eru ekki hækkuð umfram vísitölu fyrr en í fulla hnefana, það er að segja þegar ekki eru taldar líkur á að tjónum viðkomandi tryggingar fækki eða kostnaður af þeim minnki,“ segir í svari VÍS við fyrirspurn mbl um ástæður hækkunarinnar.
Hækkunin mun ganga jafnt og þétt í gegn samhliða endurnýjun trygginga hvers og eins viðskiptavinar en mismunandi er hvenær ársins þær endurnýjast.
Í bréfi sem VÍS sendi einum viðskiptavini segir að iðgjald bílrúðu- og kaskótrygginga hækki um tíu prósent vegna slæmrar afkomu. Þá hækki iðgjald lögboðinnar ökutækjatryggingar um allt að átta prósent umfram vísitölu. Einnig vegna slæmrar afkomu.
Í afkomutilkynningu VÍS vegna fyrstu níu mánaða ársins sagði að umtalsvörður vöxtur í tjónatíðni á tímabilinu hefði valdið því að tjónakostnaður hefði aukist meira en sem nemur hækkun iðgjalda. Afkoma af ökutækjatryggingum sem telja um helming af iðgjöldum félagsins, var talin óviðunandi á öllum fjórðungum rekstrartímabilsins.
VÍS segir iðgjöld og afslætti vera í sífelldri endurskoðun til að bregðast við breytingum á fjölda tjóna og kostnaði af þeim. „Vegna fjölgunar tjóna og hærri bóta hafa ökutækjatryggingar hjá VÍS ekki staðið undir sér um nokkurt skeið. Hækkun á iðgjaldi þeirra endurspeglast í því og tekur aðeins til þessara trygginga,“ segir VÍS.
„Eðli máls samkvæmt þurfa ökutækjatryggingar eins og aðrar tryggingar að standa undir sér þannig að iðgjöld þeirra dugi fyrir tjónum sem greiða þarf út,“ segir í svari VÍS.
„Því miður hefur sú ekki verið raunin en að sama skapi eru iðgjöld lækkuð þegar aðstæður leyfa.“
Hagnaður VÍS á fyrstu níu mánuðum ársins var tæpir 2 milljarðar króna og nam arðsemi eigin fjár 17,4 prósentum á ársgrunni. Góð afkoma skýrist af góðri ávöxtun fjárfestingaeigna.
Fjárfestingastarfsemin gekk vel á árinu og var jákvæð afkoma af öllum eignaflokkum. Ávöxtun skuldabréfa hefur verið góð og eins hefur hlutabréfasafn félagsins skilað ágætri afkomu það sem af er ári. Hluti af fjárfestingaeignum, viðskiptakröfum og innlánum er í erlendri mynt.