Bókaversluninni Iðu við Lækjargötu 2A verður lokað um áramótin og veitingastaðurinn Hard Rock kemur þar inn í staðinn. Þetta var endanlega staðfest í morgun.
Arndís B. Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Iðu, er þegar byrjuð að hreinsa út úr búðinni en afsláttur verður á öllum vörum fram til áramóta.
Þrátt fyrir að ætla að loka um áramótin gerir hún ráð fyrir að taka sér nokkra daga á nýju ári til þess að rýma húsnæðið. Þær vörur sem eftir standa verða ýmist færðar í verslun Iðu Zimsen við Vesturgötu 2A eða Mál og Menningu, en verslanirnar eru í eigu sömu aðila.
Þá munu starfsmenn fá vinnu á öðrum hvorum staðnum og engar uppsagnir fylgja því breytingunni.
Iða var með leigusamning til sex ára í húsinu en Arndís segir Hard Rock hafa keypt sig út úr samningnum. Líkt og mbl hefur áður greint frá renna leigusamningar kaffihússins Mezzo og pítsustaðarins, Sbarro, á eftir hæðinni út í vor.
Hard Rock hefur um nokkurn tíma haft mikinn áhuga á að opna á Íslandi. Fyrr á árinu tryggði fjárfestirinn og einn eigenda Domino's Pizza, Birgir Þór Bielvedt, sér leyfi fyrir staðnum hér á landi.
„Við erum alveg opin fyrir því að opna annars staðar í bænum,“ segir Arndís aðspurð um framhaldið en bætir með að hún muni einbeita sér að Iðu Zimsen til þess að byrja með. „Það er kominn tími til þess að hleypa öðrum að eftir ellefu ára veru hérna,“ segir hún.
„Hér hefur verið frábært og þessu fylgja blendnar tilfinningar. En svona er lífið stundum,“ segir hún. „Þetta er stór breyting en maður verður bara að horfa jákvætt á það.“