Ef tollar á svína- og alifuglakjöti verða afnumdir spara neytendur fjóra milljarða króna, segja Samtök verslunar og þjónustu.
Samtökin segja að neytendur beri umtalsverðan kostnað af verndartollunum eins og komi fram í útreikningum efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins.
„Lækkun tollverndarinnar eða afnám hennar yrði veruleg kjarabót fyrir heimilin í landinu enda er alifuglakjöt vinsælasta kjöttegundin hérlendis með tæplega þriðjungs markaðshlutdeild. Sala svínakjöts er í þriðja sæti rétt á eftir lambakjöti en töluverð aukning hefur verið í sölu svínakjöts hérlendis að undanförnu og nam aukningin tæpum 12% á síðasta ári.
Samkvæmt útreikningum efnahagssviðs SA mun ávinningur heimilanna í landinu nema 21.249 krónum á ári að jafnaði ef tollar af svína- og alifuglakjöti verða lækkaðir um helming. Væru tollarnir felldir niður að fullu myndi hvert heimili spara 32.938 krónur að meðaltali á ári.
Við útreikningana var miðað við sölu svína- og kjúklingakjöts á síðasta ári. Ávinningur heimilanna yrði að líkindum meiri, því lækkun eða afnám tollanna mun væntanlega stuðla að aukinni neyslu þessara kjöttegunda.
Rannsóknir sem gerðar hafa verið á verðbreytingum vegna afnáms vörugjalda og breytinga á tollum hafa sýnt að breytingarnar hafa skilað sér sem varanleg verðlækkun til hagsbóta fyrir neytendur,“ segir í fréttatilkynningu.