70 milljarða viðskipti ÍLS

Forstjóri Íbúðalánasjóðs segir að í dag varðveiti heimilin í landinu …
Forstjóri Íbúðalánasjóðs segir að í dag varðveiti heimilin í landinu þúsundir milljarða í eigin húsnæði og því skipti stöðugleiki á fasteignamarkaði gríðarlega miklu máli. mbl.is/Ómar

Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir að staða sjóðsins hafi batnað umtalsvert frá því sem var skömmu eftir hrun. Brugðist hafi verið við uppsöfnuðum uppgreiðsluvanda Íbúðalánasjóðs, m.a. með fjárfestingu lausfjárs í verðtryggðum skuldabréfum með föstum vöxtum.

Viðskiptin sem fram fóru undir lok síðasta árs námu ríflega 70 milljörðum króna.

Hermann bendir á, að framtíðarhlutverk Íbúðalánasjóðs sé í mótun hjá stjórnvöldum en ljóst sé að stöðugur húsnæðismarkaður sé og muni áfram vera lykilþáttur í góðum lífsgæðum almennings hér á landi. 

Þetta kemur fram í pistli sem birtur hefur verið á vef Íbúðalánssjóðs.

Sjóðurinn verið skattgreiðendum dýr

Íbúðalánasjóður hefur verið skattgreiðendum dýr og ef ekkert verði að gert varðandi sjóðinn munu framlög til hans halda áfram að aukast um árabil, sagði Hagsjá Landsbankans í síðasta mánuði. Í fjárlögum ársins 2016 er gert ráð fyrir 1,3 milljarða króna framlagi til sjóðsins.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, benti nýverið á í grein sem birtist í Morgunblaðinu, að frá árinu 2008 hafi ríkisvaldið lagt 77,8 milljarða í samfélagsbankann Íbúðalánasjóðinn. „Langstærsti hlutinn er til að halda lífi í þessum litla banka sem fáir vilja vera í viðskiptum við,“ sagði Guðlaugur.

Uppgreiðslur áfram áskorun

„Uppgreiðslur verða áfram áskorun sem leita þarf lausna við en kaupin á verðtryggðum fasteignalánum frá Eignasafni Seðlabankans tryggja bætta árlega afkomu sjóðsins um 1,1 milljarð næstu árin.

Gripið hefur verið til fjölbreyttra aðhaldsaðgerða hjá sjóðnum að undanförnu, stöðugildum hefur fækkað og skipulag verið einfaldað. Þá hefur ríkissjóður ekki þurft að leggja sjóðnum til aukið eigið fé frá árinu 2013. Í fjárhagsáætlun sjóðsins er ekki gert ráð fyrir eiginfjárframlagi frá hinu opinbera. Einu fjárframlög hins opinbera til Íbúðalánasjóðs samkvæmt fjárlögum næsta árs eru vegna vaxtaniðurgreiðslu félagslegra leiguíbúðalána sem sjóðurinn hefur umsjón með og framlag vegna tapaðs vaxtamunar vegna lækkunar höfuðstóls verðtryggðra íbúðalána,“ skrifar Hermann.

Er ekki í beinni samkeppni við bankana

„Sjóðurinn starfar sem kunnugt er samkvæmt mjög þröngum heimildum um hámarkslán í framhaldi af þeim lagabreytingum sem gerðar voru á árinu 2012 í kjölfar athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Ekki er hægt að segja að Íbúðalánasjóður eigi í beinni samkeppni við bankana um en ný útlán sjóðsins nema innan við 10% af heildarútlánum til íbúðarkaupa árlega síðustu þrjú ár í samanburði við húsnæðislán bankanna sem hafa á sama tíma verið á bilinu 200-300 milljarðar króna,“ segir Hermann ennfremur.

Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs.
Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK