VÍS lækkar arðgreiðslu um 3 milljarða

Stjórn VÍS hefur lagt til breytta arðgreiðslutillögu og lækkað fyrirhugaða arðgreiðslu félagsins um tæpa þrjá milljarða króna. Heildarfjárhæð arðgreiðslunnar er nú rúmir tveir milljarðar króna. Til stóð að greiða fimm milljarða króna í arð. 

Þetta var ákveðið á fundi stjórnarinnar í dag. Stjórn Sjóvá lækkaði einnig arðgreiðslutillögu sína fyrr í dag.

Í breytingartillögunni er lögð til heildarfjárhæð sem alls nemur 2.067 milljónum króna sem jafngildir 0,90 krónum á hlut. Hagnaður VÍS á síðasta ári nam tæp­um 2,1 millj­arði króna og er arðgreiðslan því á pari við hagnaðinn líkt og hjá Sjóvá eftir breytta tillögu.

Eðlilegt hluthafalýðræði

Í greinargerð stjórnar er vísað til fyrri yfirlýsingar VÍS, er sagði að staðið yrði við fyrirhugaða arðgreiðslu.

„VÍS sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar umræðu, þar sem bent var á að hluthafar félagsins hefðu til þess möguleika á aðalfundi að bera fram tillögu um lægri arð en stjórn lagði til. Það er hið eðlilega hluthafalýðræði.“

„Núverandi stjórn VÍS tók við í nóvember síðastliðnum. Fyrir stjórn lágu markmið um fjármagnsskipan félagsins þar sem leitast er við að hámarka arðsemi þeirra hátt í þúsund hluthafa félagsins og tryggja að félagið stæði sterkt að vígi,“ segir í greinargerð stjórnar.

„Arðgreiðslutillögur stjórnar VÍS voru vel innan þess ramma, enda er félagið sterkt fjárhagslega. Sú stefna sem stjórn vann eftir hefur legið fyrir frá ágúst 2015 og margoft komið fram í kynningarefni félagsins.“

Orðsporið gæti skaðast

Þá segir að viðskiptavinir og starfsmenn VÍS skipti félagið miklu.

„Stjórnin getur ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að fylgi hún núverandi arðgreiðslustefnu, þá geti það skaðað orðspor fyrirtækisins. Í því ljósi hefur stjórn ákveðið að leggja til að greiðsla sé miðuð við hagnað síðasta árs. Stjórn VÍS telur mikilvægt að fram fari umræða innan félagsins, meðal hluthafa og út í samfélaginu um langtímastefnu varðandi ráðstöfun fjármuna sem ekki nýtast rekstri skráðra félaga á markaði.“

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS.
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK