Meira af bjór og léttvíni í tollinum

mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Samkvæmt nýju frumvarpi um fjármálaráðherra verður mögulegt að kaupa meira af bjór og léttvíni. Einn lítri af sterku áfengi mun þó fara langleiðina með að klára tollinn.

Þetta kemur fram í frétt Túrista. Í komuversluninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eru í dag skýringamyndir sem sýna hvernig farþegar geta nýtt sér allan áfengiskvótann eins og það er orðað í kynningarefni Fríhafnarinnar.

Þar eru  útskýrðar þær fimm mismunandi leiðir sem færar eru til að blanda saman áfengisflokkum miðað við lög um tollfrjáls kaup á áfengi.

Þetta gæti hins vegar brátt heyrt sögunni til því nýtt frumvarp fjármálaráðherra felur í sér breytingar á tollinum svokallaða í þá átt að hann verði hér eftir miðaður við 6 einingar. Farþegar geta þá blandað saman áfengisflokkum eins og þeir vilja í stað þess að fylgja þessum föstu leiðum sem eru í gildi í dag.

mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Tvær kippur í viðbót

Samkvæmt frumvarpinu telst 1 eining vera; 3 lítrar af bjór, ein 0,75 cl léttvínsflaska eða 0,25 cl af sterku áfengi (meira en 22%). Hálfs lítra kippa af bjór verður þá ein eining og flaska með einum lítra af sterku áfengi er þá 4 einingar. Í frumvarpinu er einnig gerð sú breyting að miða magn af léttvíni við hefðbundnar vínflöskur sem eru 0,75 cl en ekki 1 lítri líkt og gert er í dag. 

Ef þessar breytingar verða samþykktar á Alþingi þá rýmkar töluvert kvótinn fyrir bjór og léttvín.

Sá sem í dag fullnýtir tollinn sinn til að kaupa öl mun eftir breytingar geta keypt 6 stórar kippur í stað fjögurra, eða 18 lítra í stað 12.

Farþegi sem vill aðeins léttvín getur á sama tíma keypt sex flöskur í stað þess að taka fjórar slíkar og svo bjórkippur til að nýta alla heimildina.

Hins vegar þurfa þeir sem kaupa einn lítra af sterku að sætta sig við minna af bjór og víni en geta aftur á móti sleppt léttari tegundum og keypt 1,5 lítra af sterku í staðinn. 

Frumvarpið er núna hjá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis og frestur til að skila inn umsögnum um það rennur út 29. apríl.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK