Íbúðalánasjóður og BK-eignir ehf. hafa náð samkomulagi um kaup þeirra síðarnefndu á 153 íbúðum samtals að fjárhæð 3,74 milljarðar af Íbúðalánasjóði og var samningur þar að lútandi undirritaður nú áðan. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Í desember bauð Íbúðalánasjóður til sölu 15 eignasöfn fasteigna í opnu söluferli, en íbúðirnar eru víða um landið. Í þessu tilfelli er um að ræða sölu á 5 þessara eignasafna. Fjöldi íbúða í þessum eignasöfnum var 504 eignir og er því hér um að ræða um 30,4% eignanna sem til sölu voru.
Kaupsamningar vegna sölu annarra eignasafna sem í bárust skuldbindandi tilboð verða undirritaðir á næstu vikum í samræmi við skilmála söluferlisins.