Alþýðusamband Íslands vill að auðlegðarskattur verði tekinn upp að nýju, veiðigjöld hækkuð og að lagður verði „alvöru hátekjuskattur á ofurlaun.“
Þetta kemur fram í tillögum hagdeildar ASÍ sem eiga að mati samtakanna að vera til þess fallnar að treysta efnahagslegan stöðugleika og félagslega velferð.
Í grein sem birt var á heimasíðu ASÍ í gær er bent á að fjármálaráðherra hafi á dögunum lagt fram tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2017 til 2021. ASÍ segir það vera jákvætt að setja ramma um markmið í opinberum fjármálum til næstu ára. Forgangsröðunin sem birtist í áætluninni valdi hins vegar verulegum vonbrigðum.
„Í fjármálaáætluninni birtast vísbendingar um hvernig stjórnvöld hyggjast nýta opinber fjármál til að forgangsraða verkefnum og skipta byrðum í samfélaginu næstu árin. Ljóst er að sú stefna sem sett er fram viðheldur þeirri vegferð sem stjórnvöld hafa verið á við að auka misskiptingu og veikja innviði velferðarsamfélagsins,“ segir í tilkynningu ASÍ og bætt er við að frá upphafi kjörtímabilsins hafi skattkerfisbreytingar einkum miðað að því að lækka skatta á tekjuhærri heimili og eignafólk. „Þar er skemmst að minnast afnáms auðlegðarskatts og lækkun veiðigjald.“
Á móti því sem lagt er til að auðlegðarskattur verði tekinn upp að nýju, veiðigjöld hækkuð og að hátekjuskattur verði hækkaður er lagt til að barna- og húsnæðisbótakerfin verði efld og að dregið verði úr greiðsluþátttöku sjúklinga auk þess sem fjármagni verði varið í uppbyggingu leiguíbúðakerfis.
Þá er lagt til að fæðingarorlofsgreiðslur verði hækkaðar og fæðingarorlof lengt til samræmis við niðurstöður starfshóps um framtíðarstefnu í fæðingarorlofsmálum