Ólafía gagnrýnir laun Guðmundar

Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR.
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Formaður VR segir að laun framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verzlunarmanna virðist hafa tekið hækkunum langt umfram það sem þekkist á almennum vinnumarkaði og hefur hún óskað eftir umræðu um málið.

Í yfirlýsingu frá Ólafíu B. Rafnsdóttur, formanni VR, segir að launaþróun æðstu stjórnenda fyrirtækja eigi að vera í samræmi við almenna launaþróun á vinnumarkaði. 

RÚV greindi frá því á dögunum að árslaun Guðmundar Þ. Þórhallssonar, framkvæmdarstjóra Lífeyrissjóðs verslunarmanna, hækkuðu um 19,11 milljónir króna frá 2009 til 2015, eða um 104,4%. Hækkunin er langt umfram hækkun launavísitölu almennt, launavísitölu stjórnenda og miðgildi launa stjórnenda, samkvæmt Hagstofu Íslands. Laun framkvæmdastjóra tveggja annarra framkvæmdarstjóra lífeyrissjóða hækkuðu um 29% og 49% á sama tímabili

Árið 2015 voru árslaun Guðmundar 37,37 milljónir samkvæmt nýjustu ársskýrslu sjóðsins.

Virðist ekki í takti kjör í sambærilegum störfum

Í yfirlýsingu Ólafíu segir að VR telji að kaup og kjör æðstu stjórnenda eigi að taka mið af því sem gerist í sambærilegum störfum hjá sambærilegum fyrirtækjum.

„Svo virðist ekki vera raunin með launakjör og launaþróun framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, sem hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum síðustu daga. Laun framkvæmdastjórans virðast umtalsvert hærri en þekkist í sambærilegum lífeyrissjóðum og virðast hafa tekið hækkunum á síðustu árum langt umfram það sem þekkist á almennum vinnumarkaði,“ segir í yfirlýsingunni.

VR á fjóra fulltrúa í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og segist Ólafía hafa komið á framfæri við þá áhyggjum félagsins af stöðunni og framangreindum sjónarmiðum.

Hefur óskað eftir umræðu

Í yfirlýsingunni segir að VR telji það vera mikilvægt að stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna skoði reglulega launakjör framkvæmdastjóra sjóðsins til að tryggja að þau séu í takt við þær áherslur sem félagið hefur að leiðarljósi við gerð kjarasamninga fyrir félagsmenn sína.

„Það ber að árétta að VR kemur ekki að ákvörðunum um launakjör framkvæmdastjóra eða annarra starfsmanna Lífeyrissjóðs verzlunarmanna en ég hef engu að síður óskað eftir því við fulltrúa félagins í stjórn sjóðsins að þetta verði rætt,“ segir í yfirlýsingu formannsins.

Þá segir að VR hafi á síðustu árum gert breytingar á skipan fulltrúa félagsins í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna með það að markmiði að auka lýðræði og gegnsæi við val á stjórnarmönnum. Þeir stjórnarmenn sem nú sitja í umboði VR í aðalstjórn sjóðsins komu allir nýir inn í vor.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK