Lánshæfiseinkunnin með stöðugum horfum

mbl.is/Hjörtur

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendum gjaldmiðli sem BBB+ og A- í innlendum gjaldmiðli. Einkunnir fyrir skuldabréf (e. senior unsecured bonds) í erlendum og innlendum gjaldmiðli eru staðfestar sem BBB+ og A-.

Þetta kemur fram á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Matsfyrirtækið segir horfur fyrir lánshæfismat langtímaskuldbindinga stöðugar. Landseinkunnin (e. country ceiling) er staðfest sem BBB+ og jafnframt er staðfest lánshæfismatið F2 fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendum gjaldmiðli.

Fitch breytti síðast lánshæfiseinkunn ríkissjóðs í júlí 2015, úr BBB í BBB+ með stöðugum horfum. Lánshæfiseinkunnin var hækkuð úr BBB- í BBB í febrúar 2013 og voru horfur stöðugar að mati fyrirtækisins. Frá október 2008 og fram til febrúar 2012 fór einkunnin úr BBB- í BB+ og síðan aftur í BBB-.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK