Capacent spáir 0,1% hækkun vísitölu neysluverðs í október. Ef sú spá gengur eftir mun tólf mánaða verðbólga hækka úr 1,8% í 1,9%.
Þá er gert ráð fyrir 0,9% hækkun fasteignaverðs sem hefur 0,14% áhrif á vísitölu neysluverðs til hækkunar í mánuðinum. Er bent á að fasteignaverð hefur hækkað um 12,2% síðastliðna 12 mánuði. Hækkaði það mikið í sumar eða um 5,4% samkvæmt mælingu Þjóðskrár Íslands.
Auk hærra fasteignaverðs er gert ráð fyrir hækkun leiguverðs og viðhaldskostnaðar. Samtals gerir Capacent ráð fyrir að fasteignaliður vísitölu neysluverðs hafi 0,18% áhrif á vísitöluna.
Capacent gerir jafnframt ráð fyrir örlítilli verðlækkun á bifreiðum, raftækjum og húsgögnum en verð allra vöruflokka er lægra nú en fyrir tólf mánuðum. Bent er á að enn virðast vera útsölur eða tilboð víða í verslunum og ætti það ekki að koma á óvart í ljósi gengis krónunnar en hún hefur styrkst upp á hvern einasta dag eða um rúmlega 3% frá sumarlokum.
Þá hefur heimsmarkaðsverð á olíu hækkað um 9% frá lokum september og var verð hráolíutunnunnar um 53,4 dollarar 10. október. Verð á díselolíu hefur hækkað um 1% frá síðustu verðbólgumælingu en verð bensíns hefur staðið í stað. Capacent gerir ráð fyrir 1% hækkun á eldsneytisverði en verð á olíu hefur verið á mikilli siglingu. Eldsneytisverð mun hafa 0,03% áhrif á VNV til hækkunar.
Könnun Capacent á verði flugfargjalda bendir til að litlar breytingar hafi verið á flugfargjöldum í mánuðinum. Aldrei þessu vant hafa flugfargjöld lítil áhrif á vísitölu neysluverðs og gerum við ráð fyrir að flugfargjöld hafi 0,02% áhrif á vísitölu neysluverðs til lækkunar.
Þá gerir Capacent ráð fyrir því að verð gistingar lækki um 5% sem hefur 0,02% áhrif á vísitölu neysluverðs til lækkunar. Er bent á að iðulega lækki verð gistingar duglega á haustmánuðum samfara minni ferðamannastraumi.
Matvælaverð og aðrir liðir hafa óveruleg áhrif á vísitölu neysluverðs og eru að mestu óbreyttir.