Kauphöllin hefur ekki enn opnað í dag vegna bilunar í kerfum Nasdaq. Viðgerðum er nú lokið og verður markaðurinn opnaður klukkan 11:10 að íslenskum tíma, 40 mínútum seinna en venjulega.
Vegna bilunarinnar hefur útboði verðtryggðra ríkisbréfa verið frestað til klukkan 14.