Spá minnkandi hagvexti í Bretlandi

Að sögn framkvæmdastjórnarinnar skýrist niðursveiflan af óvissunni sem hefur orðið …
Að sögn framkvæmdastjórnarinnar skýrist niðursveiflan af óvissunni sem hefur orðið vegna áætlaðrar útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. AFP

Hæg­ast mun veru­lega á hag­vexti í Bretlandi á næstu tveim­ur árum sam­kvæmt Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins. Sam­kvæmt nýj­ustu spá þeirra mun hag­vöxt­ur í Bretlandi á  þessu ári nema 1,5% og 1,2% á næsta ári miðað við 2% á síðasta ári.

Að sögn fram­kvæmda­stjórn­ar­inn­ar skýrist niður­sveifl­an af óviss­unni sem hef­ur orðið vegna áætlaðrar út­göngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Þá spá­ir hún því að hag­vöxt­ur á Evru­svæðinu verði hraðari en í Bretlandi, þ.e. verði 1,6% og 1,8% 2018. Þá er gert ráð fyr­ir því að verðbólga á Evru­svæðinu verið 1% á þessu ári miðað við 0,2% á síðasta ári.

Frétt BBC.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK