Verkfræðifyrirtækið Efla hefur nú lokið hönnun á 4,5 kílómetra vegkafla norðan við Þrándheim.
Verkið var unnið í samstarfi við norsku vegagerðina og kostaði í heild um 100 milljónir norskra króna, um 1,35 milljarða íslenskra króna, að því er fram kemur í umfjöllun um umsvif Eflu í Noregi í Morgunblaðinu í dag.
Fyrirtækið hefur verið umsvifamikið í verkefnum í Noregi á undanförnum árum. Guðmundur Guðnason, sviðsstjóri samgangna hjá Eflu, segir þó að styrking krónu geti haft áhrif á starfsemi fyrirtækisins í Noregi til framtíðar. Að hans sögn tók hönnunin um sex mánuði. Efla hefur nýlega unnið þrjú verk á svipuðu svæði nærri Þrándheimi, er þeim nú lokið og þau komin í rekstur.