Bæklunarklíníkin GHP Stockholms Spine Center, sem er undir stjórn Björns Zoëga, bæklunarlæknis og fyrrverandi forstjóra Landspítalans, hefur nú tekið yfir rekstur bæklunarklíníkurinnar GHP Spine Center Göteborg, en báðar eru sérhæfðar í hryggskurðlækningum.
Björn hefur verið forstjóri GHP Stockholms Spine Center, sem hefur verið stærsta einingin í hryggskurðlækningum á Norðurlöndunum, nú í nokkur ár. Með kaupunum á GHP Spine Center Göteborg stækkar fyrirtækið um helming og ábyrgðarsvið Björns þar með, en hann verður forstjóri beggja klíníkanna.
„Þetta leggst bara vel í mig, ég sé mikla möguleika í samstarfi á milli eininga sem eru að vinna mjög líka vinnu,“ segir Björn í samtali við mbl.is og bætir við að töluverð samlegðaráhrif verði þar af.
„Eftir þessar breytingar þá sjáum við um um 25% af hryggskurðlækningum í allri Svíþjóð og þá eru háskólasjúkrahúsin talin með,“ segir Björn.
„Þetta verður þó smá þvælingur á mér þar sem ég er enn með fjölskylduna á Íslandi og er því mikið á ferðinni hingað heim.“ Björn hefur auk þess haldið stöðuhlutfalli á Landspítalanum þar sem hann hefur komið að hryggaðgerðum ca. 2 daga í mánuði. Hann segir enga breytingu verða þar á í bili. „Við munum bara sjá hvernig það leysist.“