Þúsundir íslenskra einstaklinga og lítilla fyrirtækja hafa þegar gerst meðlimir Costco að sögn Steve Pappas framkvæmdastjóra Costco í Bretlandi. Hann segir undirbúning opnunar ganga samkvæmt áætlun og hefur tímabundin skrifstofa fyrirtækisins verið opnuð á bílastæði væntanlegs vöruhúss í Kauptúni. Geta áhugasamir komið þar við og kynnt sér verslunina ásamt því að skrá sig.
Stefnt er að því að opna verslunina í lok maí en nánari dagsetning verður kynnt á næstu vikum.
Að sögn Pappas standa ráðningar nú yfir og ganga þær vel.
Ársaðild að vöruhúsi Costco fyrir einstaklinga kostar 4.800 krónur á ári og fyrirtækjaaðild 3.800 krónur. Aðgangur að vöruhúsi Costco er aðeins heimill þeim sem eru með aðild og gildir hún í vöruhúsum Costco um allan heim en þau eru 725 talsins.
Vöruhús Costco í Kauptúni verður alls 14 þúsund fermetrar.