Matsfyrirtækið Standard & Poor’s lækkaði lánshæfismat vogunarsjóðsins Och-Ziff Capital Management niður í ruslflokk á mánudaginn. Degi eftir að Sculptor Investments s.a.r.l., sem er tengt Och-Ziff Capital Management Group, keypti 6,6% hlut í Arion banka.
Var lánshæfiseinkunn félagsins lækkuð úr BB+ niður í BB með neikvæðum horfum.
Vísir greindi fyrst frá þessu en í frétt Marketwatch segir að kostnaðarsamsetning félagsins sé önnur en upphaflega var gert ráð fyrir og tekjurnar óstöðugri í ljósi þess að eignir félagsins eru í raun verðminni en reiknað var með í fyrra mati.
Hlutabréf Och-Ziff lækkuðu um 3,8% í kjölfar þess að nýja lánshæfismatið var kynnt.
Í vikunni vísaði Smári McCarthy, þingmaður Pírata, einnig til þess að Och-Ziff hafi þurft að greiða háar bætur vegna aðkomu að spillingarmálum.
Frétt mbl.is: Nýir eigendur í spillingarmálum