Skiptafundur hjá félaginu Íslenskur matur og matarmenning verður haldinn 28. mars og verður gjaldþrotaskiptum þar lokið ef ekki koma fram ábendingar um eignir í síðasta lagi á fundinum.
Félagið var úrskurðað gjaldþrota í haust.
Eigandi félagsins var Hugveitan ehf., sem er félag í eigu hjónanna og fjölmiðlafólksins Svavars Halldórssonar og Þóru Arnórsdóttur. Félagið var stofnað árið 2013 og er eini ársreikningur þess frá sama ári. Varð þá 2,5 milljóna króna tap af rekstrinum. Í árslok var eigið fé félagsins neikvætt um tvær milljónir króna.
Skráður tilgangur félagsins er framleiðsla á kvikmyndum, myndböndum og sjónvarpsefni. Hélt það m.a. utan um framleiðslu þáttanna „Íslenskur matur“ sem sýndir voru á RÚV.
Í samtali við Viðskiptablaðið við stofnun félagsins sagði Svavar að fyrirtækið ætti að vinna að því að koma íslenskum mat og matarmenningu á framfæri bæði innanlands og utan. „Allt er undir, bæði sjónvarp, bækur og vefur,“ sagði Svavar.
Uppfært: Félagið sá um framleiðslu fyrrnefndra þátta en Svavar hætti öllum afskiptum af því á síðasta ári og sagði sig úr stjórn þess. Þóra sagði sig úr stjórn félagsins árið 2014.