Andri Steinn Hilmarsson -
Geir H. Haarde, sem var fjármálaráðherra þegar 45,8 prósenta hlutur íslenska ríkisins í Búnaðarbankanum var seldur S-hópnum svonefnda í janúar 2003, segir það dapurlegra en orð fá lýst að nú, 14 árum eftir að hluturinn var seldur, komi í ljós að stjórnvöld sem seldu þessa eign almennings í góðri trú og í samræmi við lagaheimildir hafi verið blekkt varðandi þátt hins þýska banka í kaupunum.
Þetta kemur fram í skriflegu svari Geirs við fyrirspurn mbl.is en ítarleg skrifleg gögn sýna með óyggjandi hætti að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser, Kaupþing hf. á Íslandi, Kaupthing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafssonar fjárfestis notuðu leynilega samninga til að fela raunverulegt eignarhald þess hlutar sem Hauck & Aufhäuser átti í orði kveðnu.
„Niðurstaða rannsóknarnefndarinnar er skýr um að stjórnvöld hafi verið beitt skipulegum blekkingum í tengslum við sölu Búnaðarbankans árið 2003 varðandi þátt hins þýska banka í kaupunum. Þessum vel undirbúnu blekkingum gátu stjórnvöld ekki varist enda höfðu þau ekki ástæðu til að gruna kaupendur um þess háttar athæfi,“ segir Geir.