Nýir aðilar eru á leið inn í eigendahóp Fréttatímans og verður tilkynnt um breytt eignarhald á næstu dögum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Gunnar Smári Egilsson, stærsti eigandi útgáfufélagsins, mun samhliða hætta afskiptum af blaðinu.
Starfsmannafundur var haldinn í gær þar sem framtíð útgáfunnar var rædd, segir í frétt á forsíðu Fréttablaðsins í dag.