Þriðji veitingastaður Hamborgarabúllu Tómasar í London hefur verið opnaður í Soho-hverfinu. Aðrir staðir eru í Marylebone og Chelsea. Fimm ár eru síðan fyrsti staðurinn var opnaður sem pop-up veitingahús í Marylebone.
Samkvæmt frétt Big Hospitality mun Sigurður Gunnlaugsson, sem sér um rekstur staðanna tveggja í London, einnig sjá um þann þriðja.
Hamborgarabúlla Tómasar rekur í dag 17 veitingastaði; sjö á Íslandi, tvo í Berlín, þrjá í Danmörku, einn í Svíþjóð, einn í Noregi og núna þrjá í London. Til stendur að opna tvo til viðbótar í Osló síðar á þessu ári.
Í London kostar „Tilboð aldarinnar“ sem felur í sér hamborgara, franskar og gos 10,90 pund, eða sem jafngildir 1.532 krónum á núverandi gengi. Á Íslandi kostar sama máltíð 1.890 krónur.