Hólmfríður Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Ankra - Feel Iceland. Hólmfríður býr yfir 15 ára reynslu af sölu- og markaðsstörfum en hún starfaði áður sem markaðsstjóri Íslandsbanka og þar á undan sem markaðsstjóri Símans og markaðsstjóri Kaupþings.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Hólmfríður útskrifaðist með B.S. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2003 og stundar nú MBA nám með vinnu í Rotterdam School of Management í Hollandi en þar er hún búsett ásamt fjölskyldu sinni. Hún er gift Ragnari Þór Ragnarssyni framkvæmdastjóra hjá Samskipum og eiga þau þrjú börn á aldrinum 9-22 ára.
Í kjölfar aukinna umsvifa Feel Iceland erlendis munu kraftar Hólmfríðar nýtast sérstaklega vel við kynningu og sölu á Feel Iceland og vörum fyrirtækisins bæði hér heima og erlendis.