Atvinnuleysi í Evrópusambandslöndum hefur ekki verið lægra síðan í febrúar 2009 og verðbólga er enn vel undir markmiðum Seðlabanka Evrópu. Nýjar hagtölur benda til þess að efnahagsbatinn í Evrópu sé að styrkjast eftir margra ára hægagang.
Atvinnuleysi var 9,1% sem er lægra hlutfall en greinendur höfði spáð fyrir um. Hæst var atvinnuleysið í Grikklandi, eða 21,7%, og á Spáni, 17,1%.
Verðbólga var hins vegar 1,3%, nokkuð minni en markmið Seðlabanka Evrópu sem er rétt undir 2%, og getur seðlabankinn því haldið lágvaxtastefnu sinni og öðrum örvunaraðgerðum.
Mario Draghi seðlabankastjóri sagði í síðustu viku að ekki væri fyrirhugað að draga úr örvunaraðgerðum, stefnumótendur þyrftu að sýna „þrautseigju og þolinmæði“ til þess að takast á við lága verðbólgu.