Iceland Travel og Gray Line sameinast

Gray Line rútur.
Gray Line rútur.

Samkomulag hefur náðst um sameiningu Iceland Travel ehf., sem er að fullu í eigu Icelandair Group og Gray Line sem er í eigu stofnenda fyrirtækisins og Akurs fjárfestinga slhf. Eftir sameiningu mun Icelandair Group eiga 70% hlutafjár í sameinuðu félagi og eigendur Gray Line munu eiga 30% hlut. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Markmið sameiningarinnar er að bæta enn frekar þjónustu við viðskiptavini og jafnframt að ná fram hagræðingu í rekstri. Gert er ráð fyrir að heildarvelta sameinaðs félags á öllu árinu 2017 verði tæplega 18 milljarðar króna.  Sameiningin er gerð með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakannana og samþykki eftirlitsaðila,“ segir í tilkynningu.

Yfirstjórn og rekstur félaganna verða sameinuð en þjónusta áfram veitt undir sömu vörumerkjum og áður. Sameinað félag mun leggja áherslu á að kynna og selja þjónustu félagsins á Íslandi og Grænlandi samhliða því að kynna löndin sem spennandi áfangastaði, segir ennfremur í tilkynningu.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group og stjórnarformaður Iceland Travel, segir í tilkynningu: „Sameining félaganna er afar jákvætt skref og styrkir reksturinn til lengri tíma litið. Bæði fyrirtæki eru í fremstu röð í íslenskri ferðaþjónustu og sameiningin gerir þeim kleift að veita viðskiptavinum enn betri þjónustu. Samkeppnin á markaðnum er mikil og Ísland og íslensk fyrirtæki eiga í harðri alþjóðlegri samkeppni. Það er því afar mikilvægt að rekstrareiningar séu hagkvæmar og að fyrirtækin leiti allra leiða til að straumlínulaga rekstur sinn. Sameinað félag nær sem heild yfir stærri hluta af virðiskeðjunni í ferðaþjónustu en félögin sem einingar gerðu áður. Því fylgja áhugaverð tækifæri til áframhaldandi þróunar, enda víða spennandi hlutir að gerast í íslenskri ferðaþjónustu.“

Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line segir í tilkynningu: „Sameining félaganna gefur okkur góð tækifæri til að halda áfram að markaðssetja Ísland sem áfangastað og þróa þjónustu og afþreyingu fyrir ferðamenn, ekki síst á landsbyggðinni. Það er mikil gerjun í íslenskri ferðaþjónustu og nauðsynlegt að fyrirtækin leggi áherslu á að uppfylla þær kröfur sem erlendir ferðamenn gera. Sameining fyrirtækjanna skapar sterkari stöðu til að uppfylla væntingar viðskiptavina  og stuðla þannig að því að viðhalda góðu orðspori ferðaþjónustunnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK