Lætur af störfum sem forstjóri Skeljungs

Valgeir Baldursson, fráfarandi forstjóri Skeljungs.
Valgeir Baldursson, fráfarandi forstjóri Skeljungs. mbl.is/Golli

Stjórn Skeljungs hefur tekið ákvörðun um að breyta skipulagi félagsins og er stefnt að innleiðingu fyrir árslok. Valgeir M. Baldursson forstjóri hefur tilkynnt stjórn félagsins um að hann gefi ekki kost á sér í starf forstjóra í breyttu skipulagi. 

Í fréttatilkynningu frá Skeljungi segir að breytingin sé þáttur í því að stytta boðleiðir, einfalda og auka skilvirkni við ákvarðanatöku og efla þannig sókn félagsins í átt að nýjum mörkuðum.

Hún felist í því að í stað þess að íslenski og færeyski hluti Skeljungs séu reknir eins og tvö aðskilin fyrirtæki, verði nú litið á alla samstæðuna sem eina heild. Einn forstjóri muni leiða framkvæmdastjórn félagsins og skipulagið muni byggja á þremur rekstrarstoðum; Færeyjum, Íslandi og þróun. 

Tekið er fram að ekki sé gert ráð fyrir að breyting þessi muni hafa umtalsverð áhrif á afkomu Skeljungs til skamms tíma. Hins vegar sé búist við að til lengri tíma muni samlegðaráhrif leiða til lægri kostnaðar, með aukinni samvinnu Færeyja og Íslands.

Þá er haft eftir Valgeiri að hann skilji við félagið á góðum stað. 

„Þegar ég kom til Skeljungs fyrir átta árum síðan stóðum við frammi fyrir miklum áskorunum í rekstri og starfsemi félagsins. Með samstilltu átaki frábærs starfsfólks tókst okkur að koma félaginu í gegnum þær á afar árangursríkan hátt. Nú er rekstur félagsins mjög góður og félagið á góðum stað fyrir þau verkefni sem fram undan eru. Með nýju skipulagi og stefnuáherslum er hins vegar kominn tími á nýjar áskoranir fyrir mig og að aðrir taki við taumunum hjá Skeljungi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK