Lýstar kröfur í þrotabú félagsins sem var stofnað fyrir framleiðslu á kvikmyndinni Djúpið nema 115 milljónum íslenskra króna. Þar af eru 10 milljónir frá kranaleigu vegna leigu á krönum sem notaðir voru við tökur í Helguvík á Reykjanesi. Engar eignir eru í búinu
Þetta kemur fram í svörum skiptastjóra búsins, Gunnars Inga Jóhannssonar, við fyrirspurnum mbl.is.
Félagið Andakt var stofnað árið 2010 til þess að halda utan um rekstur og framleiðslu á Djúpinu. Í maí 2015 var það dæmt til að greiða kranafyrirtækinu ÁB Lyfting rúmar fjórar milljónir krónur vegna leigu á krönum.
Annar kraninn var notaður til þess að velta og hvolfa bátnum, sem notaður var í kvikmyndinni, og að lokum hífa hann upp úr höfninni í Helguvík. Þá var annar krani fenginn til þess að aðstoða við kvikmyndagerðina og flytja kvikmyndafólk og tæki.
Krafa ÁB lyftingar í búið nemur nú 10 milljónum króna. Hin krafan, um 105 milljónir króna, er frá móðurfélaginu Sögn sem er 88% í eigu Baltasars Kormáks Baltasarssonar, sem framleiddi og leikstýrði myndinni.
Djúpið var fjórða vinsælasta kvikmyndin í kvikmyndahúsum á Íslandi árið 2012. Kvikmyndin fjallar um það þegar Guðlaugur Friðþórsson synti sex kílómetra í land eftir að báturinn Hellisey fórst seint í mars 1984.