WOW air flutti 258 þúsund farþega til og frá landinu í október eða um 46% fleiri farþega en í október árið 2016. Þá var sætanýting WOW air 90% en var 86% í október á síðasta ári.
Þetta er þrátt fyrir 42% aukningu á framboðnum sætum á milli ára að því er kemur fram í tilkynningu frá WOW air. Það sem af er ári hefur WOW air flutt yfir 2,4 milljónir farþega.
Sætanýting félagsins var 85% í september, 90% í ágúst og 90% í júlí. WOW air flýgur til 38 áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku og var fimm áfangastöðum í Bandaríkjunum bætt nýlega við leiðakerfið. Hefst flug þangað næsta vor.