Kröfur í þrotabú Helgafellsbygginga námu 4.068 milljónum króna en aðeins fengust tæpar 12,8 milljónir upp í kröfurnar, eða 0,31%. Langstærsti kröfuhafinn er Landsbankinn með 99,8% krafna í búið en Orkuveita Reykjavíkur á rest.
Helgafellsbyggingar ehf. voru teknar til gjaldþrotaskipta í mars 2013 en fyrirtækið var stofnað í kringum viðamikla uppbyggingu á Helgafellslandinu þar sem reisa átti um þúsund íbúðir. Sama ár eignaðist Landsbankinn lóðir og lendur í hverfinu vegna uppgjörs við félagið.
Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins gerði félagið samning við bæjarstjórn Mosfellsbæjar árið 2006. Það gat ekki staðið í skilum við bæjarsjóð vegna lóðakaupa og nam skuldin 246 milljónum króna.
Meðal hluthafa var fasteignasalinn Arnar Sölvason sem var í sjálfskuldarábyrgð fyrir félaginu. Gjaldþrot hans nam 2,5 milljörðum króna og er með stærri gjaldþrotum einstaklings hér á landi.
Skiptafundur þrotabús Helgafellsbygginga fer fram 1. desember.