Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan nóvember er 136,1 stig og hefur því hækkað um 0,3% frá fyrri mánuði.
Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar.
Innlent efni hækkaði um 0,3% og innflutt efni hækkaði um 0,8%. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 4,5%.